Um Ljóð fyrir framtíðina

Óperudagar efndu til ljóðasamkeppni fyrir grunnskólanema árið 2019 þar sem börnum var boðið að senda inn ljóð um náttúruna, loftslagið, framtíðarsýn sína og drauma. Hugmyndin á bak við keppnina var að fá innsýn inn í hugarheim barna og viðhorf þeirra til þessara málefna, ásamt því að efla þátttöku barna í menningarlífinu. Verkefnið var innblásið af aktífisma Gretu Thunberg varðandi loftslagsmálin. Nokkur ljóð voru valin úr um 400 innsendum ljóðum og í kjölfarið fengu ung norræn tónskáld það verkefni að semja við þau tónverk.

Síðan þá hefur verkefnið verið í frekari þróun í samstarfi við tónlistarhátíðina Nordic Song Festival (NSF) í Trollhättan í Svíþjóð og Tórshavnar Musikkskúli í Færeyjum. Ný lönd og samstarfsaðilar eru í þann veginn að bætast við í samstarfið en markmiðið er að vinna með börnum, barnakórum og samstarfsaðilum frá öllum Norðurlöndunum.

Með tíð og tíma verður hægt að lesa og hlusta á barnaljóð hér á síðunni á öllum Norðurlandamálunum og öðrum tungumálum sem börn á Norðurlöndunum nota. Börn geta sent okkur ný ljóð og upptökur af þeim svo hægt sé að hlusta á en einnig er hægt að senda inn myndir og teikningar. Sum ljóðin verða valin til að semja tónlist við í samstarfi við norræn tónskáld. Vinsamlegast athugið að það tekur okkur nokkrar vikur að fara yfir innsend ljóð, myndir og upptökur.

Frá upphafi hefur verkefnið hlotið styrki frá Loftslagssjóði, Norræna menningarsjóðnum, Norrænu ráðherranefndinni, Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði og ýmsum sænskum og færeyskum sjóðum.